Einkaþjálfun
Persónuleg leiðsögn í sal, rétt framkvæmd æfinga og prógram sem þróast með þér.
Skoða einkaþjálfun →Persónuleg þjálfun á þínum forsendum
Fyrir þig sem vilt byrja í ræktinni eða finna taktinn aftur — með persónulegri leiðsögn sem tekur mið af þinni stöðu, dagskrá og markmiðum.
Pakkarnir nýtast á fjórum eða átta vikum og fela ekki í sér áframhaldandi skuldbindingu.
Þjónustan
Við byrjum þar sem þú ert og byggjum þig upp — skref fyrir skref.
Persónuleg leiðsögn í sal, rétt framkvæmd æfinga og prógram sem þróast með þér.
Skoða einkaþjálfun →Sérsniðið æfingaprógram, vikuleg eftirfylgni og stuðningur — hvar sem þú ert.
Skoða fjarþjálfun →Raunhæf ráð og einfaldar venjur sem vinna með æfingunum og þínu daglega lífi.
Fá nánari upplýsingar →Matarprógramm og næringarleiðsögn
Við byrjum á þínum venjum, markmiðum og daglega lífi. Engar óþarfa öfgar — bara skýr og persónuleg leið sem þú getur raunverulega fylgt.
Þú svarar stuttum spurningalista og skráir mat og drykk í fimm daga. Út frá því færðu raunhæft, einstaklingsmiðað matarprógramm.
Allt sem fylgir matarprógramminu ásamt fjögurra vikna eftirfylgni, stuðningi og breytingum eftir þörfum.
Fáðu næringarleiðsögnina ásamt sérsniðnu æfingaprógrammi, vikulegu stöðutékki og reglulegri endurgjöf.
Þjálfarinn þinn
Ég heiti Stefán Arnar, er menntaður einkaþjálfari og hef haft líkamsrækt að stórum hluta af mínu lífi frá árinu 2010.
Ég hef stundað styrktarþjálfun af krafti frá árinu 2010, keppt í fitness og öðlast fjölbreytta reynslu úr boxi og karate. Sú reynsla hefur kennt mér að árangur byggist á góðri tækni, stöðugleika og þjálfun sem hentar einstaklingnum.
Ég lauk námi við Einkaþjálfaraskóla World Class árið 2024 og nýti bæði menntunina og eigin reynslu til að hjálpa þér að skilja ekki aðeins hvað þú ert að gera heldur líka af hverju.
Skýr verð · raunverulegur sparnaður
Veldu einn mánuð eða fáðu lægra mánaðargjald með lengra samstarfi. Allir pakkar byrja á samtali og engin greiðsla fer fram á síðunni.
Einkaþjálfun í sal
Komdu þér aftur í góða rútínu með skýru plani, persónulegri leiðsögn og reglulegri eftirfylgni.
Viltu prófa fyrst?
60 mínútna einkaþjálfun, stutt markmiðaviðtal og yfirferð á helstu æfingum — án skuldbindingar um áframhald.
Tíminn fer fram í Kötlu Fitness og þú þarft að hafa gildan aðgang að stöðinni. Hafir þú ekki áður nýtt prufuaðgang geturðu óskað eftir prufutíma hjá Kötlu Fitness, samkvæmt skilmálum stöðvarinnar.
Einkaþjálfun fer að jafnaði fram í Lambhaga og Faxafeni. Óskir um aðrar stöðvar Kötlu Fitness eru metnar eftir samkomulagi.
Ertu ekki viss hvaða leið hentar? Sendu mér línu og við finnum það saman.
Umsögn úr einkaþjálfun
„Ég get hiklaust mælt með einkaþjálfun hjá Stefáni eftir að hafa verið í þjálfun hjá honum. Hann er skipulagður og vandvirkur og passar vel upp á að allar æfingar séu rétt framkvæmdar. Hann útbjó einnig áætlun sem hentaði mér persónulega mjög vel. Síðast en ekki síst gerði hann æfingarnar skemmtilegar — en það var ekki alltaf raunin hjá mér áður.“— Hallur
Hafðu samband
Segðu mér aðeins frá þér og markmiðunum þínum. Ég hef samband og saman finnum við leið sem hentar.