Einkaþjálfun í Kötlu Fitness

Komdu þér af stað.
Á þínum
forsendum.

Persónuleg leiðsögn fyrir þig sem vilt byrja af öryggi, komast aftur í rútínu eða loksins fá skýra stefnu í ræktinni.

Stefán Arnar, einkaþjálfari hjá SA Fitness
2010Líkamsrækt varð hluti af lífinu
15+ árReynsla í styrktarþjálfun
2024Einkaþjálfaraskóli World Class
Katla FitnessSjá staðfestan þjálfaraprófíl ↗

Svona virkar þetta

Þú þarft ekki að vera í formi til að byrja

Ég sameina menntun einkaþjálfara og yfir áratug af eigin reynslu úr styrktarþjálfun. Við byrjum nákvæmlega þar sem þú ert og byggjum áfram á þínum hraða.

01

Byrjum á stöðunni

Við förum yfir reynslu, markmið og það sem hefur staðið í vegi fyrir árangri hingað til.

02

Þjálfum markvisst

Ég leiðbeini þér í framkvæmd æfinga og aðlaga álagið að þér hverju sinni.

03

Fylgjum framförum

Prógram, mælingar og markmið eru endurskoðuð svo þú haldir áfram að þróast.

Innifalið

Allt sem þú þarft til að halda áfram

  • ✓ Einkaþjálfun 1×, 2× eða 3× í viku
  • ✓ Einstaklingsmiðað æfingaprógram
  • ✓ Upphafsviðtal og markmiðasetning
  • ✓ Mælingar og reglulegt stöðumat
  • ✓ Næringarleiðsögn
  • ✓ Breytingar eftir þörfum

Veldu þína leið

Einn eða tveir saman

Þú getur æft einn með mér eða komið með æfingafélaga. Lengra samstarf lækkar mánaðargjaldið og gefur okkur meiri tíma til að festa góðar venjur í sessi.

Skoða alla pakka →
Stefán Arnar einkaþjálfari í Kötlu Fitness í Faxafeni

Þín vegferð

Byrjum þar sem þú ert. Byggjum síðan áfram — eitt skref í einu.
Sérstakt kynningarverð

Viltu prófa fyrst?

Fyrsta skrefið

13.290 kr.8.990 kr.

60 mínútna einkaþjálfun, stutt markmiðaviðtal og yfirferð á helstu æfingum. Engin skuldbinding um áframhald. Þú þarft gildan aðgang að Kötlu Fitness.

Hafir þú ekki áður nýtt prufuaðgang geturðu óskað eftir prufutíma hjá Kötlu Fitness, samkvæmt skilmálum stöðvarinnar.